Nýir nemendur eru teknir inn tvisvar á ári: á haustin og aftur um áramót. Vetrinum er skipt í tvær annir: Haustönn, sem stendur frá ágústlokum til loka desember, og vorönn, sem stendur frá byrjun janúar til loka maí.
Hluti af starfsemi Hringsjár (auk annarra endurhæfingarúrræða) er kennsla hefðbundinna skólaáfanga.
Yfirlit yfir námsgreinarnar má finna neðst á þessari síðu.
Skóladagatalið 2021-2022![]() Skóladagatalið 2021-2022 (PDF skjal |
Hver einstaklingur má gera ráð fyrir 4 - 6 kennslustundum á dag.
Kennt er frá 8:50 til 14:00 fimm daga vikunnar á venjulegum starfstíma skóla.
Yfirleitt er unnið í 10 til 20 manna hópum eftir viðfangsefni en einnig veitt einstaklingsaðstoð ef þurfa þykir.
Sífellt hærra hlutfall nemenda hefur farið í frekara nám eftir veru í Hringsjá. Viðkomandi skólar hafa þá metið til eininga það námsefni sem nemandinn hefur lokið með viðunandi árangri. Góð samvinna hefur verið við framhaldsskólana um námsmat.
Fög merkt * eru kennd í hálfa önn.
|
|
|